6 dagar í íslenskt vatn, íslenskt lambakjöt, íslenskt veður, íslensku og allt annað íslenskt
Eftir nákvæmlega 5 daga verð ég í flugvél að fljúga til Íslands!! Trúiði því og svo bara lendi ég heima á Íslandi hjá ykkur öllum! Trúi ekki það sé alveg að fara koma að þessu - ég er að fara aftur heim. Frekar skrítið þar sem ég er búin að vera hérna síðan í ágúst. Hef aldrei áður verið svona lengi að heiman! Maður er nú alveg orðinn helling spenntur samt verður örugglega ótrúlega erfitt að segja bless við fjölskylduna og afs krakkana! Búin að segja bless við vini mína og það var sko ótrúlega erfitt.
En síðustu daga er ég bara búin að vera njóta þess að vera í sumarfríi það er svo kósý :D Fórum á ströndina síðustu helgi sem var ótrúlega heitt og húðin mín hefur aldrei verið mikill aðdáandi sjósins svo að ég eyddi mestum tímanum á handklæðinu mínu í sandinum þar sem var smá vindur og það var sandur ALLSSTAÐAR. Svo í síðsutu viku fór ég í Fiesta Texas með Eddu Tidu og Arm það var ótrúlega gaman fúllt mikið af rússibönum. Svo á mánudaginn fór ég í sea world og lá bara á bekknum þar voða kósý vantaði einhvern til að koma með mér í rennibrautirnar nennti ekki ein! :o En fór bara í öldulaugina með stelpunum hehe....
Annars eru allir aðrir dagar voða svipaðir. Á þriðjudögum förum við alltaf í bíó kl 10 því það eru fríar barnamyndir og á fimmtudögum á bókasafnið þar sem stelpurnar fara í einhvern sögutíma og ég bara á netið :) Svo erum við bara mikið í sundlauginni og sofandi haha maður verður svo þreyttur á hitanum sko shiii...
Planið fyrir síðustu dagana er bara hafa það þægilegt og að vísu gera fullt. Erum að fara sækja Caitlin í sumarbúðir á morgun og svo á laugadaginn erum við að fara einhvað komum aftur heim á sunnudaginn. Svo verður smá kveðjupartý fyrir mig hjá afanum pizza kaka og kósýheit :D Svo á mánudaginn verður laaaangur dagur. Byrja á því að klára pakka niður og fara í sturtu og þannig. Svo um 12 leitið þarf ég að fara til San Marcos þurfum að vera þar kl 1. Þar fáum við svona 15 mín til að kveðja fjölskylduna og svo er lokalokanámskeið fyrir okkur, alla skiptinema í San Antonio og Austin. Svo um kvöldið förum við held ég til Houston þar sem allir skiptinema í South Central America munu verða svona 450 manns!! Þar af 2 íslendingar hehe... Svo á þriðjudaginn þá er dagurinn loksins runninn upp sem ég flýg heim á. Flýg frá Houston kl 10,30 lendi svo í Atlanta og flýg svo þaðan til NY og svo kem ég heim til Íslands. Lendi þar kl 6,20 1. júlí
IAH - Houston, Intercontinental, TX
30.6.2009
10:55
ATL - Atlanta, Hartsfield Atlanta Int'l Airport
30.6.2009
13:58
ATL - Atlanta, Hartsfield Atlanta Int'l Airport
30.6.2009
15:25
JFK - New York - John F. Kennedy, NY
30.6.2009
18:10
JFK - New York - John F. Kennedy, NY
30.6.2009
20:35
KEF - Reykjavik - Keflavik International
1.7.2009
06:20
Svona eru flugin mín öll á staðartíma.. ekki spennandi :D
Þetta er síaðsta blogg sem ég ætla að skrifa örugglega því það er nú ekkert meir að segja held ég er náttrúrulega aaalveg að koma heim :O
Sakn
Hugrún sem getur sagt hún verði á íslandi í næstu viku:D
LOKSINS KOMIÐ NET!!
Tíminn líður alveg asnalega hratt. Trúi ekki ég sé að fara koma heim eftir 18 daga!!! Eftir 16 daga legg ég af stað frá San Antonio. Á eftir að vera ótrúlega erfitt. Á eftir að sakna fulls en samt gott að koma aftur heim til Íslands til alls og allra sem maður hefur saknað. Eins og íslenska vatnið get svo svarið það að ég var búin að gleyma því þangað til fyrir nokkrum dögum síðan :O Eða ekki kannski gleyma því hafði bara ekkert hugsað um það, venjulega þegar maður fer til útlanda er það eitt mesta tilhlökkunarefnið en það eru venulega 1-3 vikur ekki 10 og hálfur mánuður. Hlakka líka til að geta keyrt guð ég er ekki búin að keyra síðan 14. Ágúst!! Og náttúrulega líka svo að sjá mömmu pabba margréti alexöndru guðbjörgu og alla hina líka ég er ekkert að gleyma að skrifa ykkur bara nenni ekki að skrifa öll þessi nöfn!
Nú fer líka að styttast í það að ég þurfti að fara pakka niður, allt orðið skipulagt í skúffunum mínum, semsagt það sem má alveg eins fara ofan í tösku núna og það sem ég þarf að nota. Nema fötin ætla ekki að fara týna útúr þeim fyrr en það er svona vika eftir. Ég er búin að senda 2 kassa heim, sé til hvort ég sendi 1 í viðbót. Ætla að setja allt ofan í tösku viku áður en ég fer heim og ef það er of mikið set ég 1 kassa í viðbót held samt þetta sleppi. Svo á ég að vísu eftir að kaupa einhverjar gjafir til að gefa ykkur svona þegar ég kem heim. Samt búin að kaupa 3 og fullt af litlum hlutum. Ætla að fara í einhverja Texas minningabúð núna bráðum og finna einhvað :D
Ég á held ég líka eftir að ferðast einhvað áður en ég kem heim, þau voru allavega að tala voða mikið um það áður en að skólinn kláraðist en ég hef varla heyrt meira talað um það. Við erum að fara til Eagel Pass núna í kvöld í einhverja veislu samt fyrst útskrifarveislu hérna í san antonio.. Svo ætlum við einhvertíman á ströndina líka, ég hef bara ekki hugmynd um hvenær :s vona við förum samt því mig langar svo klikkað mikið, ná sér í meira tan :D Er alltaf í sundi núna það er svoooo þægilegt og líka stundum bara að liggja úti og tana :D Ætla sko að vera brúnni en þið öll nema þið sem eruð með asnalega dökka húðliti því ég er með mjööög hvíta húð og verð bara ekki mikið brúnni en ég er núna! Hlakka samt svo til að sjá ykkur litlu hvítu Íslendingar, ég hef samt aaaaldrei verið jafnbrún og ég er núna ! Allavega ekki svo ég viti af, kannski þegar ég fór til portúgal fyrir 10 árum og var úti stanslaust nema á næturnar í 3 vikur ég bara man ekkert hverstu brún e´g var þá en nóg um það!
Ég er svo looooooooksins komin í sumarfrí! :D Skólinn er loksins búinn:D Samt leiðinlegt að hitta ekki alla lengur :( Daginn sem skólinn kláraðist var ég grenjandi allan daginn sérstaklega þegar skólinn var næstum búinn. Þá var skólastjórinn að tala í hátalarakerfinu og var að segja einhvað vona að þið eigið öll gott sumar og ég var í búningsherberginu og vá ég byrjaði að gráta svo mikið þá og þjálafrinn minn var einhvað æjj ekki gráta og svo var ég bara að knúsa alla bless og fór svo fram og hitti eina vinkonu mína og gat varla talað var bara með svona grenjurödd og svo fór ég út og hitti strax einn vin minn og hann bara varstu að gráta og svo hitti ég svo marga aðra og já var bara hágrenjandi!!!!
Svo í gær ætlaði ég að vera með smá kveðjupartý og sendi öllum sms um að það byrjaði 3 og þau yrðu að vera farin 6 því ég var að fara einhvað svo breyttist það og ég þurfti ekkert að fara með þangað sem þau voru að fara og lét eiginlega engann vita, ætlaði bara láta vita þegar þau kæmu en ég var ekkert að pæla að allir eiga foreldra sem vinna á daginn þannig eiginlega engin kom hehe samt allt í læ Brisa, systir hennar og Veronica komu og það var alveg gaman - vorum bara að synda og svo tjilla bara :) Svo í dag fór ég í Fiesta Texas með Eddu, Tidu og Arm. Það var ótrúlega gaman!!!! Fórum í svo marga rússíbana og vá ég öskraði svooo mikið röddin mín verður örugglega farin á morgun! Einn þeirra fór ótrúlega hratt og fór sko í silljón hringi og stoppaði ekki eða hægði á sér fór bara endalaust og vá ég öskraði allan tímann sko! Svo fór ég líka í La cantera mallið sem er svona útimall! Eina verslunamiðstöð sem ég hef séð Zöru í síðan ég kom. Fór samt ekki þangað.. sá bara hehe:) Svo í dag fór ég í hand og fótsnyrtingu :) Klikkað næs, mamma spælsti svo núna er ég með fínar neglur!
En held þetta verði síðasta bloggið áður en ég fer heim. Kannski kemur einhvað svona rétt áður en ég fer sé bara til.. náttúrulega komið net LOKSINS þannig það er alveg möguleiki hehe. Búin að búa á netinu síðustu daga hehe.. það er samt svo hægt þanngi ekkert brjálað gaman að vera á því neitt og svo er ekkert í minni tölvu og mig vantar itunes og vlc media player í mína til að geta horft á einhvað og spilað tónlist. En þetta er komið flott!!!
Ég kem til Íslands 1. Júlí kl. 6.20 sjáumst þá!!!
Eeeeellsk, kossar, knús og sakn
Hugrún Arna!!
Í dag þann 13. Júní eru:
18 dagar í heimkomu
16 dagar í að ég legg af stað heim
53 dagar í Tenerife
25 dagar í að ég byrja að vinna
Ca. 77 dagar þangað til skólinn byrjar
147 dagar þangað til ég á afmæli
29 dagar :O
Jaeja nuna kemur looooksins blogg :) Astaedan fyrir tvi eg hef ekki bloggad er einfaldlega su ad eg er ekki med og alltaf tegar eg kemst a netid er eg of upptekin! En eg held svona i alvoru talad truidi tvi eda ekki ad tad se ad fara koma net heim til min loooksins tad er buid ad vera af sidan i november!!!!
Eeeen sidan 19. april er eg buin ad gera margt, eg bara man ekki helminginn samt hehe...
Tann 15. mai for eg i utilegu med AFS sem var oootrulega gaman. Forum ad synda sma um kvoldid eda sumir gerdu tad eg var ekk ein af teim vatnid var svo iiiiiskalt. Eg og Alejandra sem er stelpa fra Chile vorum ad fara uti vatnid og hun bara labbadi uti og eg var einhvad aejj tetta er alltof kalt og allir hinir voru einhvad stelpan fra chile labbar bara uti en stelpan fra islandi er ad frosna hehe. En svo vorum vid bara ad tala og grilla sykurpuda og borda popp til svona 4 held eg ta forum vid ad sofa. Svo voknudum vid 8 og svo klukkan 12 kom mamma Tims og Axels og sotti mig og ta og eg for heim og byrjadi ad gera mig tilbuna fyrir Prom. Veronica kom til min og vid gerdum okkur tilbunar saman og svo um svona 7 kom Brisa og sotti okkur og vid forum tangad sem promid var. Tetta var nu alveg allt i lagi, eg var daudtreytt samt og tetta minnti mig alveg otrulega mikid a arshatid hja holabrekkuskola sakna islenskra balla! Tau eru miklu skemmtilegri.
Svo er skolinn ordinn svo leidinlegur sko vid erum ad horfa a myndir i naestum ollum timunum minum, svona i alvoru talad allt i lagi ad horfa svona vid og vid en tegar tad eru 3 biomyndir a dag i 2 vikur er tetta ordid soldid mikid! En nuna er sidasta vikan loooksins ad byrja! Get ekki bedid eftir tessi skoli verdur buinn a samt eftir ad sakna svo mikid af folki:( Eeen tad les nu eiginlega enginn tessi blogg min lengur tannig eg neni ekki ad hafa tetta einhvad langt hef heldur eiginlega ekkert meria ad segja :S
Blogga finna blogg ef eg fae net bradum
- hugrun :)
Ullalla :)
Hallo :D
mig langar ad skrifa med islenskum stofum tad er einhvernveginn miklu audveldara to eg turfi ad yta a faerri takka :( enenene eg verd bara saetta mig vid tetta og tid lika :) Eeeen sidasta vika er buin ad vera OTRULEGA skemmtileg.
Sidasta laugadag for eg ad versla med Brisu og Luz keypti ogislega flottan kjol fyrir prom a mynd af honum en ekki i tessari tolvu og geggjada sko lika teir eru samt sko haedstu skor sem eg hef att !!! Er svo spennt fyrir prom sko :D Tad er 2. mai svo tetta er alveg ad koma :D:D En ja svo for eg lika i bio a Hanna Montana tetta er svona an djoks ogedslega fyndin mynd eg hlo meira en litlu krakkarnir i salnum :D
Svo a paskadag var otrulega gaman :D Forum til systur Steves sem byr svona 40 min i burtu tad var svo heitt uti tannig eg var bara i bikini og stuttbuxum og hlirabol og vorum ad gera svona slip & slide va tad var svo gaman fekk lika alveg gott tan eftir daginn. Svo vorum vid lika med egg med svona allskonar inni og vorum oll ad reyna ad brjota tau a haunum a hvort odru og folk nadi mer sko bara tegar tad komu svona 3 a mig a sama tima samt ta var eg oll i tessu!
Svo i sidustu viku er buin ad vera svona mathcamp i skolanum og eg er svona tutor tannig eg tarf ekert ad fara i tima neitt :D nema i 4th period ma eg fara og ma lika gera einhvad annad ef eg vil en tetta er uppahaldstiminn minn hvort ed er tannig eg fer alltaf, eda timinn er leidinlegur en skemmtilegt folk :D Samt er tetta buid ad vera otrulega gaman, staerfraedi allan daginn :D bordid mitt fyrir hadegi er otrulega skemmtilegt, ta eru softmores a bordinu okkar og va tad er svo gaman hja okkur en svo eftir hadegi eru juniors og krakkarnir a bordinu minu eru svo leidinlegir! tau tala ekki neitt og bidja eiginlega aldrei um hjalp tanni eg og hin stelpan erum bara ad tala og gera somu staerfraedi og tau :)
Svo a fimmtudaginn voru undanurslit fyrir oll einstaklingshlaup i track. Forum strax eftir hadegismat til Loredo sem er svona 2 klukkutima i burtu og forum sko i 2 rutum, strakar i einni og stelpur i einni. A leidinni var eg ad tala vid Gudbjorgu i siman og tad voru allir ad stara a mig bara hvad ertu ad segja - tad var svo fyndid. En tegar vid komum ta byrjudu strakarnir ad gera einhver hopp svona fimleika og taekvandov og sogdu teir aetludu eki ad gera meir fyrr en stelpurnar gerdu einhvad og tetta endadi i einhverri gedveikri keppni va tetta var svo fyndid. En hlaupin sjalf gengu bara vel, baetti mig fra 1.14.78 i 400m i 1.13.00 og i 200m baetti eg mig fra 31.78 i 30.9, svo tegar vid komum aftur i ruturnar tegar vid vorum ad fara heim byrjudu strakarnir ad gera einhvad i sinni rutu og stelpurnar byrjudu ta ad metast vid ta i tvi og svo kom tjalfarinn snarklikkadur bara hvad erudi ad gera setjisti nidur ! hahah va tetta var svo fyndid. En svo forum vid heim og vorum kominn i skolann milli half 1 og 1. Svo i skolanu a fostudaginn var eg svooo treytt eg var ad deyja sko! og Kennarinn minn i 1sta timanum var lika a track meetinum og hann var einhvad ohhh eg er svo treyttur og eg var ad leka ut allan daginn var lika svo pirrud ef einhver for i taugarnar minar. Svo i gaer voru ursltin og tjaflarinn hafdi sagt okkur ad vid attum ad maeta i skolann klukkan 4.30 tvi rutan atti ad fara 5, en svo breytti hun tvi fyrir ta sem voru bara ad hlaupa tvi hlaupin byrjudu klukkan 2.30 tannig eg turfti ekki ad maeta i skolann fyrr en 9.00 :D En mer gekk svo allt i lae i gaer, tad voru sko 9 i urslitum i hverri grein, eg var 8 eda9 saeti i 400m baetti samt timann minn meira fra 1.13.00 i 1.10.89 og i 200m var eg i 6 eda 7 saeti hljop a svipudum tima og i undanurslitinum. Samt skolanum okkar gekk ovenjuvel. I JV ta var einhver i 6 saeti i langstokki, 1 stelpa i 1. saeti fyrir discuss og 1 onnur i 1.saeti i shotput. Vid vorum i 1. saeti i 4*100m, 4*200m og 4*400m held eg allavega i top 3 i 4*400m. Svo i 100m var ein stelpa held eg i top 6 oooog tetta er allt sem eg man fyrir JV. En Varsity var i 3 saeti i 4*100m og 2 stelpur i 2 og 3 saeti 100m og tau fara ta afram ef tau eru i top 3. Einn strakur var i fyrsta saeti i baedi 100 og 200, strakarnir voru i 2 saeti i 4*100 og 1 saseti i 4*200. Svo voru teir i 4. saeti i 4*400 sem var klikkad svekkjandi tvi tegar fyrsti hljop og var ad fara lata annan fa stongina ta missti hann hana tannig vid vorum ta ordin sidust en teir nadu aftur ad komast i 3. saeti en svo a sidasta hringnum ta nadi einn annar einum og teir endudu i 4. saeti. Tad var samt otrulega gaman, vorum sko komin heim um 10 leitid.
Svo naestu helgi er Fiesta og einhverjir krakkar fra Houston og Austin ad koma og tad er einhver klikkud dagskra fyrir okkur alla helgina. Svo helgina eftir tad er prom :D Svo eru bara 71 dagur tangad til eg kem heim :D Svo spennt ad hitta ykkur :D
En eg aetla fara vera meiri ludi i tolvunni tvi eg komst looooooksins a netid :D bleee koss koss og knus knus
Hugrun Arna
bloggedi
Godan daginn
I dag er laugadagurinn 4. april og eg er ekki buin ad blogga i eilifd en tar sem eg a ekki net ta finnt mer tad bara mjog god afsokun en eg aetla ad byrja tetta blogg a tessu:
HUN ATTI AFMAELI I GAER
HUN ATTI AFMAELI I GAER
HUN ATTI AFMAELI HUN ALEXANDRA
HUN ATTI AFMAELI I GAER
HUN VAR 19 ARA I GAER
HUN VAR 19 ARA I GAER
HUN VAR 19 ARA HUN ALEXANDRA
HUN VAR 19 ARA I GAER
Til hamingju med afmaelid i gaer tar sem eg gat ekki hringt i tig tvi tu varst i utlandi!
Eeeeen jaja hvad get eg sagt ykkur. Track timabilid er byrjad nuna eg er buin ad fara a 4 trackmeeti eda svona hlaupakeppnir held eg. Buid ad ganga alveg allt i lae.. Fyrsta ta hljop eg 100m a 15.68 sek og 200m a 32, svo a odrum ta hljop eg 100m a 15.21 sek og 400m a 1 min og 15 sek, a tridja ta var 100m a 15.15 sek og 400 a 1 min og 13 sek svo nuna a fimmtudaginn ta hljop eg 100m a 15.14 og 400 a 1 min og 14 sek, hefdi getad gert betur en oklinn minn var ad deyja, hef ekki fundid svona mikid til i honum sidan i januar sko! For svo til tjalfarans i skolanum i gaer og hann var ad lata mig gera allskonar aefingar svo tetta verdi betra svo tarf eg ad fara aftur a manudagsmorguninn.
Svo var vorfri i byrjun mars. Forum til New Mexico sem var bara fint. Keyrdum samt asnalega mikid. Byrjudum a tvi ad keyra i marga klukkutima og svo akvadum vid ad stoppa og fa okkur burger king i kvoldmatinn og svo nenntu tau ekki ad keyra meir svo ad vid svafum a bilaplani fyrir utan burger king i hjolhysinu. En daginn eftir ta hledum vid afram og forum a stad tar sem var stor hellir klikkad flott vorum tar i halfan dag og forum svo til Albaquerci tar sem vid vorum i 4 daga. Forum orugglega a trilljon sofn, eg get svo svarid tad tetta voru nog sofn fyrir naestu 70 ar ok :D Eeen svo forum vid lika i dyragardinn oog forum 1 dag til Santa Fe og svo forum vid med einhverjum litum trailer uppi fjall tar sem var veitingastadur og svo var lika snjor tar og tid hefdud att ad sja svipinn a stelpunum taer hafa sko aldrei sed snjo adur og Caitlin hun var i opnum skom og henni var svo kallt hun var hagratandi en Emerson var svo glod ad hun gleymdi ad henni var kalt var bara brosandi og hlaupandi um tad var svooo fyndid. Svo sidasta daginn ta forum vid i loftbelg, eg var svo hraedd adur en vid forum upp en tegar vid forum var tad bara allt i lagi :D En svo forum vid aftur til TX og forum a einhvern stad tar sem amma steves atti heima og vorum tar i 1 nott og svo forum vid heim.
Svo er bara buid ad vera skoli, sidustu 9 vikurnar eru byrjadar sem tydir tad ad skolinn er naestum buinn :D Vorum ad gera leikrit i leiklist i hopum og svo attum vid ad velja 2 bestu leikritin i bekknum og okkar leikrit var valid, gerdum Mean girls haha :D En svo turftum vid ad gera tad aftur og keppum vid alla hina sem komust afram veit ekkert hvernig okkur gekk sko. En annars ta gengur mer bara vel i ollu. Svo er prom bradum eftir taeplega manud, 2 mai :D Buin ad kaupa mida og sollis :D Svooo er vedrid farid ad vera betra fer upp i 30 stig naestum a hverjum degi, er buin ad fara nokkrum sinnum i sund og fa sma tan, ad visu er eg med stutterma og stuttbuxnafar eftir ad vera alltaf a aefingum tarf bara jafna tad ut tegar tad fer ad vera nogu heitt til ad fara i sund a hverjum degi orugglega bara nuna i april :D Aetla fa nog tan adur en eg kem heim, tid islendingar verdid ad haetta fara i ljos tivi ad mig langar ad vera brun ok! Svo aetla eg ad vera meira brun tegar eg fer til Tenerife :D Svsvosvovososvo hvad meir. Var ad fa paskaegg og nammi fra Islandi :D:D:D Eg er svo glod eg eeeelska paskaegg !
Eeeen eg held tetta se nog nenni ekki ad skrifa meira
sjaumst eftir 88 daga held eg :D
baaaeee
hugrun arna
brandari handa ykkur >
Hvernig laeturu ljosku fremja sjalfsmord?????
eg vil fa allavega 10-20 svor svara naest tegar eg fer a netid nema enginn svari
bleee :)
LOKSINS
Loksins kemur blogg og ég ætla að byrja á því að rifja aðeins upp árið 2008 og svo kemur venjulegt blogg :)
Árið 2008 var æðislegt ár. Gerðist fullt sem ég mun aldrei gleyma. Held ég hafi upplifað kaldasta dag sem ég man eftir í lok janúar eða byrjun febrúar þegar ég fór á námskeið í sólheimum og það var um -20 gráður úti og það var svo sárt að vera úti og snjórinn náði upp að mjöðmum. Svo er maður að kvarta af kulda stundum hérna í Texas þegar það fer undir 10 gráður, það hefur nú samt alveg orðið frost örsjaldan síðan ég kom. Svo gleymi ég aldrei veðrinu á nemó, í byrjun febrúar. Það var ógeðslegur snjóstormur og ég skutlaði pabba í vinnuna snemma um morguninn og ég hef aldrei verið jafn hrædd að keyra og á leiðinni heim frá því. Svo festi ég bílinn í snjónum fyrir leiksýninguna en hún mamma mín bjargaði mér.
Svo fór ég líka á ótrúlega skemmtilegt námskeið í janúar í Skálholti held ég hafi aldrei farið í jafn mikið af leikjum með fólki á aldrinum 16-40 ára, ef ekki eldra. Svo var peysufatadagurinn í apríl sem var ótrúlega skemmtilegt, og líka árshátíð McDonalds. Svo í maí voru náttúrulega lokapróf og svo fékk ég verslunarpróf!
Svo kom sumarfríið loksins. Fór í bústað með Alexöndru, Guðbjörgu, Guðlaugu, Andra, Auðunni, Ernu, Ingibjörg, Styrmi og Eika um Eurovision helgina og Ísland lennti í 14. Sæti ohh ég er sko enþá glöð að við komumst í úrslitin og lenntum frekar hátt. Svo fór ég á undirbúningsnámskeið hjá AFS fyrir þessa blessuðu ferð um mánaðamót maí og júní. Svo í júní var ég bara að vinna ótrúlega mikið. Fór líka á Laugavatn í 1 nótt með Alexöndru og Andra að heimsækja Guðbjörgu og Ingu sem var ótrúlega gaman, fórum í „rösla" maður - var það ekki nafnið haha, skiptir nú ekki miklu en ég skemmti mér vel.
Fór svo til Danmerkur í lok júní með mömmu, pabba, Margréti, Arnari, Ragnhildi, Kolbrúnu Töru, Steinunni Völu og Þórunni Söru sem var ótrúlega gaman og ekkert smá gott veður, fór alveg upp í 30 stig! Svo þegar ég kom heim þá komu 2 vikur fullar af vinnu held ég hafi unnnið rúmlega 110 tíma á 2 vikum. Þarna einhverstaðar inná milli fór ég líka á Laugavatn aftur með Andra, og Inga var í bænum svo hún kom með okkur. Svo var hún sofandi aftur í og Andri í tölvunni frammí og ég keyrði fram hjá afleggjaranum og svo vaknaði Inga og spurði „erum við ekki aaaðeins of nálægt fjallinu" og ég vissi náttúrulega ekkert, hafði keyrt þangað einu sinni áður og plús það var myrkur var eins og einhver asni í framan og þurfti að snúa við, þetta var nú samt svo fyndið, þó það sé ekkert endilega þegar ég er að skrifa það. En svo komst ég looooksins í frí og svo um Verslunarmannahelgina fór ég á Laugar í Sælingsdal með mömmu, pabba, Margréti, Daníel, Elísabetu, Þórhalli, Þuríði, Gunna, Dóru og Erlu Hildi sem var fínt. Fórum í Tungusveitina líka :D Svo allar sögurnar hans Gunna sem ég átti að segja fólkinu í texas af Íslandi en ég verð að viðurkenna það að ég man ekki 1 af þeim. En næstu 2 vikur fóru svo í það að undirbúa ferðina miklu.
14 ágúst rann svo upp dagurinn mikli. Ég held ég gleymi aldrei kvöldinu áður þegar ég týndi kortinu mínu í bílnum og ég og Alexandra leituðum í öllum bílnum, held það hafi ekki verið 1 staður í öllum bílnum sem við leituðum ekki á. Svo daginn eftir þá fann ég það einhverstaðar inná milli hjá handbresunni og pabbi náði því upp fyrir mig :) En ég fór uppá flugvöll um 8 leitið og kvaddi mömmu, pabba og Margréti, held ég hafi ekki grátið jafn mikið ótrúlega lengi. En svo fór ég í loftið um hálf 11. Kom svo til Houston klukkan 3 á Texas tíma og þá var klukkan orðin 8 á Íslandi. Þannig þetta var lööööng ferð. Svo byrjaði ég í skólanum viku seinna og fór aðeins að aðlagast betur og betur með hverjum deginum. Svo er allt sem ég er búin að gera hérna í bloggunum fyrir neðan.
En ég vona að þið öll hafið átt gleðileg jól.
Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla, get ekki beðið eftir að sjá ykkur öll í sumar! (veit tetta er sma seint)
Svo ætla ég að halda áfram núna með venjulegt blogg þar sem ég er ekki búin að blogga í öld!
Þar sem ég hef ekki bloggað síðan fyrir thanksgiving sem var í lok nóvember þá verður þetta blogg extra extra langt. Ég ætla reyna rifja allt upp eins vel og ég get en ég lofa engu, gleymi örugglega fullt en ég er búin að segja sumum frá svo miklu svo að þið eruð ekki að missa af neinu merkilegu.
En allavega á Thanksgiving fór ég til Holly systur Steve og þar var öll fjölskyldan og við borðuðum bara fullt af mat svo var ég að skoða allskonar bæklinga því það var súperútsala daginn eftir og svo spilaði ég líka dominos við kallanna og náði alveg ágætistökum á því, þeir eru alltaf að spila einhver spil sem maður þarf að hugsa í. En svo fórum við til mömmu Tami í kvöldmat og ég var sko ekkert svöng þar en maður píndi einhvað smá oní sig og ég var svooo södd eftir þennan dag. Fór svo heim og ég var ekkert þreytt og gat ekki sofið, þar sem ég var svo að fara versla með Tami um 4 ákvað ég bara sleppa því að sofa þar sem klukkan var að ganga held ég 2. En allavega svo fórum við að versla og ég keypti nýja tölvu sem er alveg æðisleg, langar bara fá netið í hana þá get ég horft á miklu meira og verð miklu meira glöð :D En svo naut ég bara síðustu daga frísins. Svo vikuna eftir byrjaði skólinn aftur, frekar rólegt eins og venjulega - það voru held ég 3 vikur eftir af skólanum til jólafrís þannig það var voða notalegt. Að vísu byrjuðu æfingar í track að vera aðeins erfiðari. Svo var jóladæmi hjá afs gaman að hitta alla krakkana aftur - vorum bara tala mest eins og venjulega og borða hehe. Svo tók lokapróf í Calculus sem gekk fínt og kláraði þann áfanga með 90 og einhvað 96 held ég. Svo þegar það fór að styttast í jólin þurfti ég að senda jólagjafir heim og alltaf að fá kassa af heiman.
En svo kom loksins af jólunum, þetta voru án efa skrítnustu jól sem ég hef upplifað. Á aðfangadag fórum við til afans og allir bara í venjulegum fötum, svo opnuðum við pakka og borðuðum og svo um 6 leitið fóru allir í sparifötin og við fórum svo í kirkjuna um hálf 7 og þegar hún var búin þá bara allir heim og aftur í venjulegu fötin. Nema ég, ég ætlaði sko að vera fín, það var nú einu sinni aðfangadagskvöld. Svo spilaði ég póker með köllunum og vann :D Svo á jóladag fórum við til ömmunnar og það fóru allir á náttfötunum nema ég fór í joggingbuxur og þæginlegan bol . Þetta er allt annað en heima. Þar eru allir búnir að kaupa ný og fín jólaföt og allir að keppast við að vera orðnir fínir og sætir klukkan 6 og halda því allt kvöldið þó maður sé bara með fjölskydlunni sinni . Þó ég fari nú líka alltaf til ömmu á jóladag þá klæði ég mig nú alltaf í fínu fötin dettur ekki í hug að fara á náttfötunum, held að mamma myndi ekki einu sinni leyfa mér að fara með þá. Svo á annan í jólum var bara vinnudagur, þannig þetta voru svona óformlegustu jól sem ég hef upplifað. Fólk var heldur ekkert að stressa sig neitt, ekkert tekið sérstaklega til í húsinu eða vera stressa sig yfir jólagjöfunum. Ég get svo svarið það að verslunamiðstöðvarnar á Íslandi eru meira troðnar heldur en þær hérna í kingum jólin. Það eru 6 stórar verslunamiðstöðvar í San Antonio og það býr rúmlega milljón í borginni sjálfri en með litlum bæjum í kring erum um 2 miljónir. Þannig það er 1 verslunamiðstöð fyrir hverja 200 þúsund íbúa. Meðan á Íslandi eru 2 stórar verslunarmiðstöðvar og það búa 150 þús manns í Reykjavík sem er 75 þúsund á hverja verlsunamiðstöð. Bílastæðin hér og heima eru svo alveg svipað jafnstór en samt er miklu erfiðara að finna bílastæði heima í kringum jólin í kringlunni. Man ég var að vinna í fyrra rétt fyrir jól í kringlunni einhvern 1 dag og það var trooooðið allan daginn og stoppaði ekki. Þannig held að Íslendingar séu með meira jólastress en aðrar þjóðir allavega meira en Bandaríkin. Mig langar í íslensk jól þau eru miklu betri!!! Svo kom af áramótunum vá það var bara verra sko. Var bara ein heima næstum allan daginn með stelpunum, og þær voru bara í venjulegum fötum ég ákvað allavega fara bara í svona fínni hversdagsföt. Svo um 5 kom tami heim með Mcdonalds sem var kvöldmaturinn! Svo um svona 8 vorum við bara að horfa á myndir og spila til miðnættis þá fengum við einhvern drykk svipaðan sprite í kampavínsglas skáluðum, horfðum á örfáu flugeldana sem voru úti. Það var einhvað brennubann því að það er búið að rigna svo mikið svo það var bannað að sprengja sumir svindluðu nú samt. Talaði við mömmu og pabba þegar það var miðnætti heima og það var sko erfitt að heyra í þeim því að það var verið að sprengja svo mikið þar. En svo fór ég að sofa bara rétt eftir miðnætti. Vaknaði svo snemma á nýársdag og fór út að labba 6 mílur - trúiði mér :o haha svo borðuðum við Mcdonalds í morgunmat og svo í hádeginu fórum við í hádegismat til afans og vorum þar allan daginn, sem var alveg fínt ég gat verið á netinu og sollis alltaf ánægð þegar ég kemst í það :D
Svo var jólafríið búið 6 jan:( Skólinn byrjaði aftur og brjálað að gera í honum því ég þurfti að klára rannsóknarblað í ensku um John Lennon, 1 ræðu í viðbót fyrir speech, það var alveg að koma að lokaprófi í sögu og efnafræði, calculus er orðið miklu erfiðara, þrufti að muna einhverja einræðu fyrir drama og svo erum við alltaf að æfa meira og meira í track því að seasonið er byrjad nuna, er alltaf a aefingum til half 5 og fyrsta keppnin okkar er 20 eda 21. Svo er eg haett i speech nuna samt alveg viss um að síðasta ræðan mín var sú besta „if tomorrow never comes", á samt eftir að sakna þeirra tíma vorum alltaf að fíflast og leika okkur þar sem ég sat, ég er samt aftur í tíma með Brisu og Veronicu, fórum í child development sem er alveg fínt hingað til. Svo fyrir stuttu for eg ad versla og bio a Bride wars hun var klikkad god sko. Svoo var AFS namskeid fyrir stutu lika sem var klikkad skemmtilegt komu 2 nyir krakkar, strakur fra Argentinu og stelpa fra Sviss. Svooo var eg klaufi a midvikudaginn var ad gera tristokk og sleri uppa oklann minn og er meidd nuna gat varla gert neitt i gaer a aefingu og gerdi ekkert i dag!
Fekk lika einkunir fyrir fyrstu onnina :)
English IV 96
Speech 97
American history 80
Chemenstry 94
Calculus 95
Theater Arts I 90
Athletics 100
En þá er þetta blogg LOKSINS búið. Það er orðið um 3 blasíður í wordinu mínu verður örugglega öll síðan mín hehe. Ég skamma ykkur ekkert mikið ef þið lesið ekki þetta allt :)
En svona fyrir ykkur sem hafa ekki tekið eftir því þá eru komnar nýjar myndir hérna við hliðiná, úr skólanum, útilegu, sleepover, af húsinu og bara fullt meir.
Ferðin mín er meira en hálfnuð og það styttist með hverjum deginum í að ég komi heim til ykkar. Get ekki beðið eftir að sjá ykkur öll.
Endalaust mikið af kossum og knúsum xoxoxoxoxoxoxoxoxo...
-Hugrún Arna Vigfúsardóttir
laaaaangt sidan sidast
En aetla setja inn myndir nuna og blogga kannski a eftir annars geri eg tad heima i vikunni og set tad a usb og set tad svo a netid vonandi naestu eda tarnaestu helgi
ok :D
elska ykkur oll kossar og knus xoxo
hugrun arna
Rumlega 100 dagar :O
Tíminn líður svo hratt áfram, núna er ég búin að vera hérna í Bandaríkjunum í rúmlega 100 daga. Á bara eftir að vera það 2 sinnum í viðbót og svo plús einhvrejar 2 vikur og þá kem ég heim. Tíminn flýgur svo hratt áfram þannig ég verð komin heim áður en ég veit af en þangað til ætla ég nú að njóta dvalarirnar hérna. Þetta er nú ekki einu sinni hálfnað. Núna á fimmtudaginn er Thanksgiving svo að þessa viku er ég í fríi sem er voða kósý. Ekki búin að vera gera neitt í dag bara svaf út og svo bara búin að tjilla í tölvunni og horfa á sjónvarpið. Áðan vorum við að horfa á mynd og svo eftir myndina byrjuðu stelpurnar að kítla pabba sinn sátu allar á honum og hann sagði ég skal gefa ykkur dollara ef þið kítlið hugrúnu og ég stökk á fætur og hljóp inná bað og þær á eftir mér en þær náðu mér áður en ég náði að læsa og ég lá á baðherbergisgólfinu og váááá það kítlaði svo mikið hata þegar ég er kítluð. Eins og einhvertíman útí kirkju þegar ég Eyrún og Alexandra lágu ofan á mér og kítluðu mig ohh það er svo óþæginlegt.
Annars er ekkert svo margt búið að gerast þennan mánuðinn eða ekkert sem ég man eftir, ég er orðin alveg ægilega gleymin. Afmælið mitt var 5. nóvember og ég hélt upp á það föstudaginn eftir afmælisdaginn minn sem var voða fínt, stelpurnar frá Noregi, Chile og Gahna komu til mín og við vorum bara að tjilla. Það ætluðu líka nokkrir krakkar úr skólanum að koma en þau fundu ekki húsið. Ég bý á alltof flóknum stað og ég kann náttúrulega ekkert að útskýra hvar ég bý. En það var voða gaman hjá okkur við vorum bara tala og fórum í pool og svona :) Svo á sunnudeginum eftir það fór ég að versla með Jane frá Gahna sem var voða fínt :D Fór í einhvað mall sem ég hafði ekki farið í áður og váá það var svo stórt finnst mollið hérna rétthjá miklu betra því það er minna. Maður ratar einhvað inní því.
Svo gengur skólinn bara ágætlega, fékk einkunirnar frá fyrstu 9 vikunnum í skólanum. Var með A í öllu nema sögu var ég með C, held ég hafi fengið 96 í ensku, 100 í speech, 79 í sögu, 95 í efnafræði, 92 í stærfærði, 98 í drama og 100 í track. Svo núna í síðustu viku fengum við einkunnir fyrir fyrstu 3 vikurnar af þessum 9 vikum, er með 60 í ensku, bara því ég var veik og gat ekki skilað öllu inn á réttum tíma, er samt búin að skila öllu inn núna þannig að ég held að einkunin sé orðin hærri, svo er ég með 94 í speech sem er búið að breytast í 95 núna held ég ;) svo í sögu er ég með 62 sem er örugglega búið að hækka einhvað því ég var með svo lágar einkunir fyrir 2 verkefni sem ég vissi ekki að var kort á baksíðunni til að merkja inná en ég kláraði það núna á föstudaginn og skilaði inn fullt af verkefnum svo að einkunin er örugglega orðin smá hærri. Svo í efnafræði er ég með 100 örugglega hærra núna því ég er búin að skila inn svo miklu extra credit en samt tókum við próf þannig það getur verið að einkunin hafi lækkað smá við það. Í stærfræði er ég með 99 og drama 100 núna en þarf að læra einhvað langt handrit fyrir mánudaginn þannig einkunin lækkar örugglega smá þegar við gerum þetta atriði.
Hmmm... hvað er ég búin að gera meira já fór 2 sinnum í bíó. Föstudaginn núna fyrir viku fór ég með Brisu, Beccu, systur Brisu og einhverjum vini Brisu á Role model, vá hún var svo ótrúlega fyndin ég hló alla myndina. Svo fór ég í gær á Twilight með Tami sem var klikkað góð en samt er bókin betri. Hata þegar ég les bækur og fer svo á myndina og það er svo mikill munur og maður hugsar alltaf oohh þetta á ekki að vera svona hehe :)
Svo var Senior myndataka á fimmtudaginn og við fengum myndirnar úr henni núna á föstudaginn sem voru bara fínar. Það var samt svo mikil sól að á einni myndinni þar sem allir voru að líta svona uppí loftið voru flestir með lokuð augun eða klikkað asnalegir í framan. En hin tókst alveg vel. Svo fékk ég líka Yearbook myndirnar í síðustu viku sem eru alltílæ. Ætla að senda mest af þessum myndum heim þegar ég sendi jólagjafirnar svo mamma og pabbi geti séð :D Ef ykkur hinum langar að sjá þær þá getiði bara heimsótt þau hehe :D En ég þarf að fara kaupa jólagjafir!! Ég veit ekkert hvað ég á að kaupa handa ykkur fólk og veit ekkert hverjum ég ætla að gefa jólagjafir einu sinni :O Ef þið ætlið að gefa mér gjöf þá megiði láta mig vita svo ég geti keypt handa ykkur líka hehe. En Margrét litla þú verður að segja mér hvað þig langar í jóla og afmælisgjöf ;) Þarf að fara drífa mig að kaupa þetta allt og senda þetta heim sem fyrst, reyna að láta pakkan vera kominn heim fyrir pabba afmæli sem þýðir það að ég þarf að senda hann heim í næstu viku :O:O:O Fer kannski einhvað í þessari viku. Hef ekkert að gera alla vikuna ekkert sem ég veit um allavega nema á fimmtudaginn eru 2 matarboð :O Verið að gera mann fetiann sko. Fór líka í 2 skírnarveislur núna um helgina....
Svoooo hvað get ég sagt ykkur meir hmm..... æjj mig langar bara koma heim og knúsa ykkur og fara svo aftur hingað hehe eða þið megið bara koma og knúsa mig :D Það er nú samt farið að kólna hérna. Hætt að vera sjóðandi brennandi heitt. Á föstudaginn var tildæmis ekki stuttermabolaveður allan daginn eftir skóla var ég í 2 peysum og leið bara venjulega þannig venjulega er ég í suttermabol eftir skóla eða hlírabol eða ienhvaaaaað :D Byrjar örugglega að kólna bráðum meira. Svo þegar byrjar að hlína aftur þá fer maður að tana einhvað svo ég komi ekki heim jafnhvít og þegar ég fór. Fer samt til New Mexico í Spring brakinu og það verður örugglega kalt þá, allavega veit ég um nokkra sem eru að fara þangað í skíðaferð í spring brakinu. En ég vona það verði bara heitt og enginn snjór hehe :D Sakna samt smá að hafa kalt og snjó en ekki mikið, sakna hins vegar ekkert að hafa rigningu. Það rignir varla hérna held það sé búið að rigna 4 sinnum síðan ég kom hingað eða einhvað. Á Íslandi væri kannski búið að vera rigningalaust í 4 daga :D haha
Ég hlakka svo til jólanna er alltaf að hlusta á jólalög núna :D Bara mánuður :D:D:D:D Held samt það verði klikkað skrítið að hafa öðruvísi jól mig lángar íslensk jól eeeen ætli maður geti nú ekki fórnað þeim eitt árið, það er meira segja bannað að skjóta flugeldum :O:O:O En þau gera það stundum því þau búa ekki inní þéttbýlinu.
Eeeeen við sjáumst eftir 200 og einhvða daga :D
Ógislega mikið af kossum og knúsum og elski handa ykkur öllum frá mér<3
Bæbæbæbæ <3<3<3<3<3
PS. koma myndir seinna, myspace er svo slow nuna get ekki opnad myndirnar :)
Takk fyrir mig! :)
Guðbjörg, Andri, Alexandra, Guðlaug, Katrín, Linda og Erna takk æðislega fyrir mig !! :) Ég var svo ótrúlega glöð þegar ég sá pakkan fékk tár í augun bara á því að skoða bókina/albúmið og fór að gráta þegar ég horfði á videoið ! :)
Þið eruð yndisleg
Elska ykkur öll mestast
